Dýrafjarðargöng - jarðstrengur


01.03.2017

Framkvæmd

Til að auka öryggi flutningskerfisins á Vestfjörðum á að leggja 132 kV jarðstreng í fyrirhuguð Dýrafjarðargöng, milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, en áformað er að reka hann fyrst um sinn á 66 kV spennu.

Jarðstrengurinn mun leysa af hólmi hluta Breiðadalslínu 1, 66 kV loftlínu milli Mjólkár og Breiðadals, þar sem línan liggur yfir Flatsfjall í allt að 750 metra hæð yfir sjávarmáli og aðstæður eru erfiðar til viðhalds og viðgerða. 

Lagning strengsins er áformuð samhliða jarðgangagerðinni og verður hann tæplega 13 km langur, frá tengivirki við Mjólká að fyrstu stæðu í Dýrafirði þar sem hann verður tengdur inn á Breiðadalslínu 1.  Með lagningu 132 kV strengs verður með einföldum hætti hægt að spennuhækka Breiðadalslínu 1 og eyða þannig mögulegum flöskuhálsi í flutningsgetu línunnar, sem er byggð fyrir þá spennu þó að hún sé nú rekin á 66 kV spennu. 

Umhverfisáhrif jarðstrengsins eru metin óveruleg þar sem hann fylgir mannvirkjabelti samgangna og er ekki að valda nýju raski.


 

Aftur í allar fréttir